Episodes
Monday May 12, 2025
Monday May 12, 2025
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um bongóblíðu og tiltektardaga. Eyvindur veltir fyrir sér hrifningu fólks á vampírusögum og þeir ræða ýmsar vampírusögur. Þá velta þeir fyrir sér muninum á fantasíu og vísindaskáldskap (sci-fi) áður en Kristján segir Eyvindi frá plötunni Six með Mansun sem varð næstum að skáldsögu eftir Kristján Atla. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.
Tuesday May 06, 2025
Tuesday May 06, 2025
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um menningaráhrif Bandaríkjanna og hermennsku stórþjóðarinnar. Kristján spyr Eyvind um meint ágæti plötunnar Mule Variations með Tom Waits og loks deilir Eyvindur ferðasögu sinni frá nýlegri för til Mexíkó og Kanada. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.
Monday Apr 28, 2025
Monday Apr 28, 2025
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli fagna sumrinu með því að ræða bestu hliðar sumarsins og mikilvægi félagsskapar. Eyvindur veltir fyrir sér framtíð tæknirisa Bandaríkjanna á tímum Trump og Kristján reynir að færa rök gegn grínristunum. Loks velja þeir uppáhalds lögin sín með hljómsveitinni R.E.M. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.
Monday Apr 14, 2025
Monday Apr 14, 2025
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða stöðu stórmynda í Hollywood og Kristján pirrar sig á viðskiptakúltúr menningar á Íslandi og ytra. Eyvindur veltir fyrir sér flótta sérfræðinga frá Bandaríkjunum og þeir spyrja sig hvort það sé í lagi að skemmileggja Teslur til að mótmæla Musk. Hljómsveitarnafn vikunnar er á sínum stað að venju.
Monday Apr 07, 2025
Monday Apr 07, 2025
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli taka stöðuna í Bandaríkjum eftir 75 daga af seinni valdatíð Trump. Kristján spyr hvort Ísland þurfi að færa klukkuna á veturna og vorin, Eyvindur ræðir um gildi krefjandi tölvuleikja og loks ræða þeir meira um Adolescence og mannhvelið á Íslandi. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.
Monday Mar 31, 2025
Monday Mar 31, 2025
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um nýafstaðna ferð á íslensku óperuna Brím í Tjarnarbíó. Þá ræða þeir 80/20-regluna svokölluðu, svo spilar Eyvindur nýtt gervigreindarlag þáttarins fyrir Kristján og þeir ræða í kjölfarið gervitónlistarmenn, áður en þeir dásama pabbahúmor og skiptast á pabbabröndurum. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað að venju.
Tuesday Mar 25, 2025
Tuesday Mar 25, 2025
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli koma fagnandi saman eftir langan aðskilnað. Eyvindur gerir grein fyrir dvöl sinni á landsbyggðinni og fjallar um það sem á daga hans hefur drifið. Kristján tekur stöðuna á áramótamarkmiðum þeirra félaga og loks ræða þeir bresku sjónvarpsþættina Adolescence sem eru að slá í gegn og mikið í umræðunni um þessar mundir. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.
Tuesday Mar 25, 2025
Tuesday Mar 25, 2025
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um þorrann og nýlegan bóndadag og línulega dagskrá á 21. öld. Eyvindur veltir fyrir sér dagbókarskrifum og loks ræða þeir öld bróligarkanna í Bandaríkjunum. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.
Tuesday Mar 25, 2025
Tuesday Mar 25, 2025
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um TikTok-bannið sem er að skella á vestan hafs. Eyvindur spyr hvaða mýtur hafi orðið til fyrir tilstilli kvikmynda og/eða sjónvarps á meðan Kristján færir rök fyrir því að janúar sé vanmetinn mánuður. Loks ræða þeir skandalamál rithöfundanna Neil Gaiman og Alice Munro. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.
Monday Jan 13, 2025
Monday Jan 13, 2025
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli hefja nýtt ár á að gera upp það gamla, ræða hvað er svona spes við áramót og tilkynna sín markmið fyrir komandi ár. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.







