Episodes
Thursday Jul 02, 2026
Thursday Jul 02, 2026
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða nýlega sýningu á Rocky Horror í Þjóðleikhúsinu. Þá ræða þeir um nýlegan dóm sem féll og kveður á um að íslensk hlaðvörp séu ekki fjölmiðlaskyld áður en Kristján segir frá nýjustu vendingum á HM í knattspyrnu. Þá ræða þeir uppþot í Belfast og forfrískvíða.
Thursday Jun 18, 2026
Thursday Jun 18, 2026
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða nýlega ferð sína í Bíó Paradís til að sjá leikritið All My Sons. Þá ræða þeir um nýlegar, ódýrar hryllingsmyndir sem eru að rústa rándýrum stórmyndum í bíó vestan hafs. Þá velta þeir fyrir sér nýjustu vendingum og hryllingssögum í gervigreindarmálum áður en þeir ræða um mikilvægi þess að blekkja sjálfan sig.
Wednesday Jun 10, 2026
Wednesday Jun 10, 2026
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um búslóðaflutninga og mínímalisma á heimilinu áður en Kristján spyr hvort það sé vitlaust að Íslendingar fari í utanlandsferðir á sumrin. Kristján útskýrir overthinkers anonymous áður en Eyvindur færir rök fyrir því af hverju fólk eigi að njóta vafans.
Wednesday May 27, 2026
Wednesday May 27, 2026
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli kveðja söngvarann Dennis Locorriere áður en Eyvindur segir frá nýafstaðinni EVE Fanfest í Hörpu. Þá velta þeir fyrir sér hver tilgangur lífsins er áður en Kristján útskýrir að þetta er ekki svona alvarlegt.
Wednesday May 20, 2026
Wednesday May 20, 2026
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli skella sér í bíltúr og ræða þreytu sína gagnvart sjónvarpsþáttum sem teygja lopann. Kristján ræðir um nafnahefðir aftan á íslenskum íþróttatreyjum og hvernig hlustunarvenjur hafa breyst áður en Eyvindur agnúast út í steggjanir/gæsanir og skýrir hvers vegna hjólreiðar eru eins og golf.
Wednesday May 13, 2026
Wednesday May 13, 2026
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli fagna vali á áhugaleiksýningu ársins á Íslandi. Eyvindur segir frá ströngu æfingaferli sínu í hjólreiðum. Loks velja þeir bestu lög tónlistarmannanna Beck og Tom Waits.
Wednesday May 06, 2026
Wednesday May 06, 2026
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli skella sér í bíltúr og ræða um rúntmenningu Íslands. Kristján fær viðbrögð Eyvindar við skemmtilegum samsæriskenningum áður en þeir ræða um tímamótasamning Brandon Sanderson við Apple TV um framleiðslu á bókum sínum.
Wednesday Apr 29, 2026
Wednesday Apr 29, 2026
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um nýjustu vendingar í heimi gervigreindar. Eyvindur segir Kristjáni frá dvöl sinni á Húsavík áður en Kristján kynnir Eyvind fyrir ýmis konar rottukóngum.
Monday Dec 08, 2025
Monday Dec 08, 2025
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um mikilvægi jóla- og áramótahefða í sínu lífi. Þá velta þeir fyrir sér lit ársins og litum í fatavali, notkun fánastanga á Íslandi, bestu tökulögin, pólitík á stórviðburðum og fleira áður en þeir gera upp og velja besta hljómsveitarnafn Krummafótar.
Tuesday Dec 02, 2025
Tuesday Dec 02, 2025
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli eru komnir í jólaskap og ræða hvenær rétt sé að skreyta og byrja að fagna jólunum. Eyvindur spyr Kristján hvort Die Hard sé jólamynd áður en þeir rífast um meint siðleysi Leðurblökumannsins Bruce Wayne. Kristján veltir fyrir sér vaxandi vinsældum áhorfs á sjónvarpsáhorf. Þá segir Eyvindur frá heimildamynd um umdeilda hundaræktun á Spáni og í kjölfarið ræða þeir almennt um dýraníð. Rétt er að vara við lýsingum í þættinum. Hljómsveitarnafn vikunnar er á sínum stað.
Hlustið á sögu Kristjáns Atla, Hver ertu?
Horfið á heimildamyndina Yo Galgo á YouTube.







