Krummafótur

Hlaðvarp þar sem Eyvindur Karlsson og Kristján Atli tækla litlu málin. Fyrir forvitið, fróðleiksþyrst og fjörugt fólk sem vill smá heimsku með heimspekinni sinni.

Listen on:

  • Apple Podcasts
  • Podbean App
  • Spotify
  • Amazon Music
  • iHeartRadio
  • PlayerFM
  • Podchaser
  • BoomPlay

Episodes

Tuesday Dec 10, 2024

Í lokaþætti ársins ræða Eyvindur Karlsson og Kristján Atli jólin og áramótin í þaula og velja uppáhalds jólalögin sín. Þá ræða þeir Netflix-heimildarmyndina um hinn norska Ibelin, velta árlegri umræðu um listamannalaun fyrir sér og ýmislegt fleira. Hljómsveitarnafn vikunnar er á sínum stað.

Sunday Dec 01, 2024

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli gera upp nýafstaðnar þingkosningar á Íslandi. Þá reifa þeir stuldinn á kettinum fræga Díegó úr Skeifunni. Eyvindur spyr hvort hægt sé að vera of vók. Loks ræða þeir borðspil af ýmsum toga. Hljómsveitarnafn vikunnar er á sínum stað.

Monday Nov 25, 2024

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli fjalla um þáttinn sem þeir tóku upp en kom aldrei út. Þá velta þeir fyrir sér þráhyggju sína og annarra yfir sönnum glæpamálum og alræmdum morðingjum. Eyvindur spyr hvort endurgerðir eigi rétt á sér og hvort þær hafi einhver áhrif á frummyndirnar, á meðan Kristján Atli spyr hvort megi syngja í bíó. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

Monday Nov 18, 2024

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um nýafstaðnar forsetakosningar í Bandaríkjunum, fara á dýptina um úrslit kosninganna og hvað þau þýða fyrir Bandaríkin, Evrópu, Ísland og komandi kosningar hér heima. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

Monday Nov 04, 2024

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um fjölda frægs fólks á framboðslistum fyrir komandi kosningar á Íslandi. Kristján segir frá tónleikum með Sinfóníuhljómsveit Íslands og Eyvindur veltir fyrir sér hár- og skallaviðkvæmni karlmanna. Þeir rifja saman upp nýlegt bíókvöld. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

Monday Oct 28, 2024

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um triggerandi námsefni og spyrja hvar rétt sé að draga línuna. Þá ræða þeir ofurhetjur og hverjar þeirra þeim þykja bestar. Eyvindur agnúast út í ótímabæran bröns og Kristján veltir fyrir sér óttanum við öldrun. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

Monday Oct 21, 2024

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um grín sem eldist misfel og hrekki. Kristján spyr hvort fólk þurfi endilega að hlusta á börn flytja tónlist og svo kryfja þeir komandi forsetakosningar í Bandaríkjunum. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

Monday Oct 14, 2024

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli gera upp nýlegt spunaspil. Svo ræða þeir um komu hrekkjavökunnar til Íslands, áður en þeir hella sér í hrollvekjufræðin og velja tíu uppáhalds hryllingsmyndirnar sínar. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað og það er einnig af hrollvekjandi gerðinni.

Monday Oct 07, 2024

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli spyrja sig hvers vegna kaffihús eru svona heillandi. Eyvindur agnúast út í sakbitnar sælur. Svo ræða þeir um sagnaheima annarra höfunda og hvort það má brjóta reglur höfundanna eða ekki, áður en þeir velta fyrir sér sjálfsfróun og skömm tengdri kynlífsumræðu. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

Monday Sep 30, 2024

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða banaríska sjónvarpsmanninn Dr. Phil í þaula og fara yfir sína sögu af því að fylgjast með honum. Þá velta þeir einnig fyrir sér nýjum lærdómi sem breytir öllu og spyrja sig af hverju greinabókmenntir eru lægra skrifaðar en fagurbókmenntir. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

© 2025 Krummafótur

Podcast Powered By Podbean

Version: 20241125